Mynd af höfði með litríku, hugmyndaríku landslagi inni í.

Skilningur á meðmælum á Spotify

Hvernig virka meðmæli Spotify?

Hjá Spotify viljum við skapa góða og einstaka reynslu fyrir hvern notanda. Markmið okkar er að tengja alla notendur við það sem þeir kunna að meta og hjálpa þeim að uppgötva eitthvað nýtt. Engir tveir hlustendur eru eins svo öll Spotify-upplifun og mörg meðmæli okkar eru sérsniðin. Þegar hlustendur okkar eru spurðir hvað þeim finnist best við Spotify nefna flestir þeirra möguleikana á sérsniði. Þú hefur kannski velt fyrir þér hvernig við búum þessi meðmæli til í heimastraumnum, spilunarlistum, leitarniðurstöðum og annars staðar í þjónustunni. Við viljum varpa ljósi á ferlið.

Hjá Spotify vinna fólkið og tæknin saman og skila þér viðeigandi niðurstöðum. Sum meðmæli eru sérvalin hjá okkur, til dæmis spilunarlistar sem ritstjórar setja saman. Önnur meðmæli eru sérsniðin að smekk hvers hlustanda, til dæmis sérsniðnir spilunarlistar sem sérhannaðir algóritmar okkar búa til.

Okkur finnst að meðmæli ættu ekki bara að snúast um næsta smellinn, heldur þróast með smekknum þínum. Við erum með sérstök teymi til að ganga úr skugga um að meðmælin stuðli að virkri notkun og raunverulegum tengslum. Við leitum stöðugt leiða til að bæta meðmælakerfin okkar til að vera viss um að efnið sem við birtum þér henti þér og þínum smekk.

Sérvalið af ritstjórum

Ritstjórar Spotify nota gagnagreiningu, næmt tónlistareyra og skilning á menningarstraumum og -stefnum til að birta efni þar sem það er líklegast til að ná til aðdáenda um allan heim. Þeir velja efni vandlega til að mæla með á Spotify, til dæmis á stýrðum spilunarlistum. Ritstjórar okkar víða heim hafa mikla innsýn og þekkingu á tónlist og menningu á hverjum stað, sem gerir þeim kleift að velja efni til að skapa sem besta upplifun fyrir hlustendur.

Sérsniðin meðmæli

Meðmæli frá Spotify eru sett saman samkvæmt algóritma og eru því viðeigandi og einstök fyrir hvern notanda. Algóritmarnir okkar velja og raða efni fyrir hvern hlustanda vítt og breitt á Spotify, þar á meðal í leitinni, á heimasvæðinu og á sérsniðnum spilunarlistum.

Algóritmanir okkar reiða sig á margvíslegt inntak til að útbúa þessi meðmæli. Vægi slíks inntaks getur breyst með tímanum eftir því hvernig þú notar Spotify. Við trúum því að smekkprófíllinn þinn sé mikilvægasta inntakið til að skapa bestu heildarupplifun hvers notanda. Hér á eftir má finna frekari upplýsingar um helstu inntaksþætti og hvernig þeir virka.

„Smekkprófíllinn“ þinn

Þegar þú átt samskipti við Spotify hafa aðgerðir á borð við leit, hlustun, hopp yfir lög og vistun í safnið þitt áhrif á það hvernig við greinum og túlkum þinn smekk. Við köllum þetta „smekkprófílinn“ þinn og hann gefur algóritmunum okkar til kynna á hverju þú hefur áhuga og hvernig þú vilt hlusta.

  • Dæmi: Ef þú hlustar á tiltekinn listamann er líklega að við mælum með fleiri lögum með þeim listamanni.
  • Dæmi: Á spilunarlistanum Útgáfuvaktin er mælt með nýjustu útgáfunum sem við höldum að þú kunnir að meta, miðað við svipaða tónlist sem þú hefur hlustað á.
  • Dæmi: Ef þú hlustar á íþróttahlaðvarp er líklegt að við mælum með öðrum íþróttahlaðvörpum.

Upplýsingar sem þú deilir með okkur

Meðmæli eru líka byggð á upplýsingum sem þú deilir með Spotify, svo sem um almenna (ekki nákvæma) staðsetningu, tungumálið þitt, aldur þinn og því sem þú fylgist með á Spotify. Þetta gefur algóritmunum okkar vísbendingar um áhugamál þín eða listamenn sem þú vilt fylgjast með.

  • Dæmi: Ef þú fylgist með tilteknu hlaðvarpi er líklegt að við mælum með þætti úr því hlaðvarpi.
  • Dæmi: Ef þú velur þýsku sem tungumálið þitt á Spotify er líklegt að við mælum með hlaðvörpum á þýsku.

Upplýsingar um efnið

Algóritmarnir okkar taka mið af eiginleikum efnisins sjálfs, svo sem stefnu, útgáfudagsetningu, hlaðvarpsflokki o.s.frv. Þetta gerir okkur kleift að greina efni sem hefur svipaða eiginleika og sem gæti gert lukku hjá svipuðum hlustendum.

  • Dæmi: Ef þú hlustar mikið á popptónlist mælum við hugsanlega með svipuðum popplögum.
  • Dæmi: ef þú hlustar mikið á glæpasögur á hljóðbókaformi er líklegt að við mælum með fleiri slíkum hljóðbókum.

Öryggi hlustenda

Við leggjum jafnt og þétt mat á áhrifin sem við sem streymisveita höfum á höfunda, hlustendur og samfélög. Spotify leitast við að tryggja að viðeigandi öryggisráðstafanir og -ferli séu til staðar, þar á meðal ráðstafanir til að koma í veg fyrir dreifingu á skaðlegu efni. Við tökum algóritmaábyrgð okkar alvarlega og störfum með stefnumótunar-, vöruþróunar- og rannsóknarteymum auk þess að ráðfæra okkur við utanaðkomandi ráðgjafa, svo sem Spotify Safety Advisory Council.

Kerfisreglur Spotify gilda um allt efni í kerfinu, þar á meðal efni sem er mælt með. Þetta eru reglur sem innri teymi okkar hafa þróað í samvinnu við ýmsa utanaðkomandi sérfræðinga. Þegar við verðum vör við efni sem brýtur mögulega í bága við reglur er efnið skoðað og gripið til viðeigandi aðgerðar. Slíkar aðgerðir geta til dæmis verið takmarkanir á meðmælum með viðkomandi efni.

Hvernig getur þú haft áhrif á það á hverju meðmæli fyrir þig eru byggð?

Meðmæli fyrir þig mótast stöðugt af því hvernig þú notar efni á Spotify. Því meira sem þú hlustar á efni sem höfðar til þín og því meiri samskipti sem þú átt við forritið, því betur höldum við að þú kunnir að meta meðmælin.

Við gerum þér líka kleift að hafa áhrif á og segja þína skoðun á því sem birtist í meðmælum og sjá minna af einhverju tilteknu. Hér á eftir eru nokkur dæmi gefin:

  • Útiloka úr smekkprófíl: Þegar þú útilokar spilunarlista úr smekkprófíl mun sá spilunarlisti hafa minni áhrif á meðmæli í framtíðinni.
  • Álit á meðmælum: Þegar þú smellir á [hef ekki áhuga / þumall niður] um meðmæli á Spotify færðu færri meðmæli sem eru svipuð.
  • Sía fyrir gróft efni: Þegar þú slekkur á grófu efni verður allt sem er merkt sem gróft grámerkt og ekki hægt að spila það.

Í sumum tilfellum getur þú líka skipulagt og síað meðmæli eftir því hvað þú vilt helst sjá. Þú getur til dæmis notað síur á þinni heimasíðu, þannig að þú sjáir bara hlaðvörp eða bara tónlist.

Hvaða áhrif hafa viðskiptasjónarmið á meðmæli?

Þegar mælt er með efni er ánægja hlustenda í forgangi hjá Spotify. Í sumum tilfellum gætu viðskiptasjónarmið, svo sem kostnaður við efni eða hvort hægt sé að hagnast á því, haft áhrif á meðmælin okkar. Í Discovery Mode geta listamenn og útgáfufyrirtæki til dæmis tilgreint lög sem þau vilja setja í forgang. Þau eru síðan merkt þannig í kerfinu okkar fyrir algóritmana sem velja efni fyrir sérsniðna hlustun. Þegar listamaður eða útgáfufyrirtæki kveikir á Discovery Mode fyrir lag tekur Spotify þóknun af straumspilun á laginu í þeim hlutum kerfisins þar sem Discovery Mode er virkt (Discovery Mode er ekki virkt á stýrðu spilunarlistunum okkar). Þetta eykur líkurnar á að mælt verði með völdu lögunum, en það er engin fullvissa fyrir því. Við mælum aðeins með lögum sem okkur finnst mjög líklegt að hlustendur kunni að meta. Líkt og með öll meðmæli tökum við eftir því þegar hlustandi bregst ekki við lagi — þar á meðal lögum í Discovery Mode — og tökum það til greina þegar við ákveðum með hverju skuli mæla í framtíðinni.