Aðgengismiðstöð

Sköpun, aðgengi og innblástur fyrir öll.

Aðgengisáætlun Spotify

Kynning

Spotify er staðráðið í að koma fram við allt fólk, þar á meðal fatlaða einstaklinga með virðingu fyrir sæmd þeirra og sjálfstæði. Við trúum á sameiningu og jöfn tækifæri. Við erum staðráðin í að mæta þörfum fatlaðra einstaklinga hratt og örugglega og munum vinna að því að bera kennsl á og fjarlægja aðgengishindranir þar sem það er mögulegt. Þessi aðgengisáætlun (eða áætlunin) lýsir skrefunum sem Spotify er að taka til að ná þessum markmiðum og skapa fleiri tækifæri fyrir fólk með fötlun.

Við tökum glöð á móti athugasemdum um þessa aðgengisáætlun eða um aðgengi hjá Spotify almennt. Þú getur deilt athugasemdum með því að fylla út eyðublaðið í aðgengismiðstöðinni okkar – sem heimilar nafnlausar innsendingar.

Þessa áætlun og lýsingu á athugasemdaferlinu okkar er að finna í aðgengismiðstöðinni okkar. Bæði áætlunin og lýsingin á athugasemdarferlinu eru fáanlegar á prenti, með stóru letri, blindraletri og á hljóðsniði. Við munum svara beiðnum innan 15 daga.

Samantekt

Aðgengisáætlun Spotify er 3 ára skuldbinding til að halda áfram viðleitni okkar til að ryðja hindrunum sem hafa áhrif á fatlað fólk úr vegi. Við munum bregðast við þessu með aðgerðum eins og þátttöku í jafnréttisstuðli fatlaðra, uppfærslu ráðningarferla og leiðbeininga um aðgengi á skrifstofum, bætingu aðgengisþjálfunar, auknu aðgengi að þjónustu við viðskiptavini og styrkingu bestu starfsvenja í samskiptum – ásamt mörgum öðrum aðgerðum sem lýst er hér að neðan. Þessi áætlun var þróuð í samráði við fólk með fötlun til að tryggja að hún endurspegli þarfir þeirra.

Lykilhugtök

Hér eru nokkur hugtök sem þú munt sjá endurtekið í áætluninni. Ef hugtak er ekki skilgreint hér, munum við skilgreina það í fyrsta skiptið sem við nefnum það.

Aðgengileg sniðmát: Vísar til leturs, stórs leturs, blindraleturs, hljóðsniðs eða rafræns sniðmáts sem er samhæft við aðlögunartækni sem ætlað er að aðstoða fólk með fatlanir.

Hindrun: „Hindrun“ merkir allt sem hindrar fulla og jafna samfélagslega þátttöku fatlaðra einstaklinga, þar á meðal þeirra sem eru með líkamlega, andlega, vitsmunalega, náms-, samskipta- eða skynfötlun eða starfræna skerðingu, og felur í sér:

  • líkamlega hindrun
  • hindrun sem leiðir af byggingum
  • upplýsinga- eða samskiptahindrun
  • hindrun tengd viðhorfslegri hegðun
  • tæknilega hindrun
  • sérhver hindrum sem er afleiðing af stefnu eða framkvæmd

Fötlun: „Fötlun“ vísar til hvers kyns skerðingar, þar á meðal líkamlegrar, andlegrar, vitsmunalegrar, náms-, samskipta- eða skynskerðingar, eða starfrænnar skerðingar, hvort sem hún er varanleg, tímabundin eða tilfallandi, augljós eða ekki, sem í samspili við hindrun kemur í veg fyrir fulla og jafna þátttöku einstaklings í samfélaginu.

WCAG: „WCAG“ vísar til nýjustu útgáfu af leiðbeiningum um aðgengi að vefefni sem gefnar eru út af Alþjóðasamtökum um veraldarvefinn.