Aðgengismiðstöð

Sköpun, aðgengi og innblástur fyrir öll.

Yfirlýsing um skuldbindingu

Hjá Spotify fögnum við hvers kyns sköpun og leitumst við að allt fólk geti notað vettvanginn okkar. Með því að læra af sérfræðingum og ráða fólk með reynslu af aðgengismálum vinnum við hörðum höndum við að gera vörur okkur aðgengilegar. Í sameiningu viljum við gera öllum kleift að skapa, uppgötva og fá innblástur.

Verkvangurinn okkar er fyrir alla og vinnustaðurinn okkar líka. Þú ert velkomin/n eins og þú ert, sama hvaðan þú kemur, hvernig þú lítur út eða hvað er að spila í heyrnartólunum þínum.

Svona skuldbindum við okkur til að uppfylla aðgengismarkmið á vinnustað okkar, verkvangi og hjá notendum:

Starfsmenn okkar: Því fleiri sjónarhorn sem við erum í fyrirsvari fyrir og mögnum upp innan Spotify, því meira munum við öll leggja af mörkum, dafna og vera frábær. Við erum staðráðin í að innleiða aðgengi í allt sem við gerum fyrir fólkið okkar um allan heim. Við munum halda áfram að þróa alþjóðlega geðheilbrigðisverkefni okkar, Heart & Soul, og erum staðráðin í að gera alþjóðleg skrifstofurými okkar að fullu aðgengileg.

Hlustendur: Spotify er hluti af lífi milljóna manna um allan heim og það er forgangsatriði að tryggja að verkvangur okkar sé öllum aðgengilegur.

Listamenn og höfundar: Verkvangur okkar er öflugur og við notum hann til að magna upp raddir, sögur og menningu samfélaga um allan heim. Við munum halda áfram að þróa stuðning okkar við listamenn og höfunda með fötlun og nota verkvang okkar til að deila hæfileikum þeirra.

Það er engin betri leið til að blása meira lífi í þessar hugmyndir en með því að bjóða upp á ákveðna og mælanlega áætlun sem við getum farið eftir og borið ábyrgð á.