Notkunarskilmálar Spotify

Síðasta uppfærsla: 26. ágúst 2025

1. Kynning

2. Þjónusta Spotify sem við veitum

3. Notkun þín á þjónustu Spotify

4. Innihald og hugverkaréttindi

5. Aðstoð við viðskiptavini, upplýsingar, spurningar og kvartanir

6. Vandamál og ágreiningsefni

7. Um þessa skilmála

1. Kynning

Vinsamlegast lestu þessa notkunarskilmála (þessa „skilmála") gaumgæfilega, þar sem þeir stýra notkun þinni á (og aðgangi að) sérsniðinni þjónustu Spotify til að streyma tónlist og öðru efni, þ.m.t. öll vefsvæði okkar og hugbúnaðarforrit sem nota eða tengjast við þessa skilmála (kallast saman „þjónusta Spotify") og öll tónlist, hlaðvörp eða annað efni sem boðið er upp í gegnum þjónustu Spotify („Efnið").

Notkun á þjónustu Spotify er háð frekari skilmálum frá Spotify og þeir eru hér með taldir með í tilvísun í þessa skilmála (kallast saman „Samningar"). Skoðaðu kafla 7 hér að neðan til að fá upplýsingar um þessa viðbótarskilmála og hvernig við getum breytt þessum skilmálum eða viðbótarskilmálum sem eru felldir inn með tilvísun. Nánari upplýsingar um hvernig Spotify safnar, notar, deilir og verndar persónuupplýsingarnar þínar má finna í persónuverndarstefnu Spotify.

Með skráningu þinni fyrir eða notkun á þjónustu Spotify samþykkir þú þessa skilmála. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála máttu ekki nota þjónustu Spotify eða fá aðgang að neinu efni.

Þjónustuveitandi

Þessir skilmálar gilda á milli þín og Spotify AB, Regeringsgatan 19, 111 53, Stokkhólmur, Svíþjóð.

Kröfur um aldur og gjaldgengi

Til að mega nota þjónustu Spotify og fá aðgang að efni þarftu að (1) vera 13 ára (eða samsvarandi lágmarksaldur í heimalandi þínu) eða eldri, (2) fá samþykki foreldris eða forráðamanns ef þú hefur ekki náð lögaldri í þínu heimalandi, (3) mega lagalega gangast undir bindandi samning við okkur án þess að nokkur gildandi lög banni það, og (4) búa í landi þar sem boðið er upp á þjónustuna. Þú lofar líka að allar skráningarupplýsingar sem þú sendir til Spotify séu sannar, nákvæmar og fullkomnar og þú samþykkir að halda þeim alltaf þannig. Ef þú hefur ekki náð lögaldri í þínum heimalandi þarf foreldri eða forráðamaður þinn að gangast undir þessa skilmála fyrir þína hönd. Ef þú hefur ekki náð tilskildum lágmarksaldri til að nota þjónustu Spotify og fá aðgang að efni máttu ekki skrá þig sem notanda. Á sumum markaðssvæðum getur Spotify boðið reikningseigendum tækifæri til að leyfa aðgang að upplifun fyrir börn sem hluta af fjölskylduáskrift. Með því að opna á slíkan aðgang staðfestir reikningseigandinn að hann hafi löglegt forræði yfir notanda sem fær aðgang að upplifuninni og að hann hafi gefið yngri notandanum leyfi til að nota Spotify.

2. Þjónusta Spotify sem við veitum

Þjónustuvalmöguleikar Spotify

Við bjóðum upp á margvíslega þjónustuvalmöguleika Spotify. Ákveðnir þjónustuvalmöguleikar Spotify eru veittir án endurgjalds en greiða þarf fyrir aðra valmöguleika áður en hægt er að nota þá („greiddar áskriftir"). Einnig kunnum við að bjóða upp á sérstök kynningartilboð, áskriftir eða þjónustu, þar á meðal tilboð frá vörum og þjónustu utanaðkomandi aðila. Við berum enga ábyrgð á vörum og þjónustu sem utanaðkomandi aðilar veita.

Prufuáskriftir

Við eða aðrir fyrir okkar hönd gætum af og til boðið upp á prufutímabil af greiddum áskriftum í ákveðinn tíma þar sem áskriftin er ókeypis eða á afslætti („prufuáskrift"). Til að nota þjónustu Spotify í gegnum prufuáskrift verður þú að samþykkja Spotify Premium skilmála fyrir kynningarefni.

Forrit, tæki og opinn hugbúnaður utanaðkomandi aðila

Hægt er að nota þjónustu Spotify með, eða hún gæti átt samskipti við forrit, vefsvæði og þjónustu utanaðkomandi aðila („forrit utanaðkomandi aðila") og við einkatölvur, síma, spjaldtölvur, snjalltæki, hátalara og önnur tæki utanaðkomandi aðila („tæki"). Notkun þín á forritum og tækjum utanaðkomandi aðila gæti verið áð frekari skilmálum, kröfum og reglum sem viðeigandi utanaðkomandi aðili veitir þér. Spotify ábyrgist ekki að forrit og tæki utanaðkomandi aðila verði samhæf við þjónustu Spotify.

Takmarkanir og breytingar á þjónustu

Við notum hæfilegar aðferðir og kunnáttu til að halda þjónustu Spotify virkri og til að bjóða þér upp á sérsniðna og grípandi hljóðupplifun. Aftur á móti gæti þjónusta okkar og framboð á henni breyst af og til án skaðabótaábyrgðar til þín, háð gildandi lögum; til dæmis:

  • Þjónusta Spotify gæti orðið fyrir tímabundnum truflunum vegna tæknilegra örðugleika, viðhalds eða prófana eða uppfærslu, þar á meðal nauðsynlegar uppfærslur til að endurspegla breytingar á ákvæðum viðeigandi laga og reglugerða.
  • Okkar markmið er að þróa og bæta þjónustu okkar stöðug og við kunnum að breyta, gera hlé á eða hætta (varanlega eða tímabundið) að bjóða upp á alla þjónustu Spotify eða hluta hennar (þar með taldir ákveðnar aðgerðir, eiginleikar, áskriftir og tilboð).
  • Efnið sem við bjóðum er í stöðugri þróun og aðlagast þörfum Spotify samfélagsins. Spotify ber engin skylda til að bjóða upp á ákveðið efni í gegnum þjónustu Spotify, og Spotify eða viðeigandi eigendur mega fjarlægja aðgang að ákveðnum lögum, vídeóum, hlaðvörpum, hljóðbókum og öðru efni án fyrirvara.

Réttur þinn til að segja þessum skilmálum upp ef þú vilt ekki lengur nota þjónustu Spotify er settur fram í 6. kafla hér að neðan.

Ef þú hefur greitt fyrirfram beint til Spotify fyrir greidda áskrift sem Spotify hættir með fyrir lok fyrirframgreidda tímabilsins (eins og það er skilgreint í hlutanum um greiðslur og uppsagnir hér fyrir neðan), mun Spotify endurgreiða þér fyrirframgreiddu gjöldin fyrir ónotaða hlutann sem eftir var af greiddu áskriftinni áður en hún hætti. Reiknings- og greiðsluupplýsingarnar verða að vera uppfærðar til að við getum endurgreitt þér.

Spotify ber enga skaðabótaábyrgð eða skyldu til að endurgreiða þér vegna rofs á nettengingu eða þjónustu eða annarra bilana sem verða af völdum opinberra yfirvalda, annarra utanaðkomandi aðila eða óviðráðanlegra atburða.

3. Notkun þín á þjónustu Spotify

Spotify reikningur búinn til

Þú getur þurft að búa til Spotify reikning til að nota alla þjónustu Spotify eða hluta hennar, og þessi reikningur verður að vera í búsetulandi þínu. Notandanafn þitt og lykilorð eru einungis fyrir persónulega notkun þína og þeim skal halda leyndum. Þú skilur að þú berð ábyrgð á allri notkun (þ.m.t. óheimil notkun) á notandanafni þínu og lykilorði. Hafðu strax samband við þjónustudeild okkar ef notandanafn þitt eða lykilorð týnist eða er stolið eða ef þú telur að einhver hafi fengið óheimilan aðgang að reikningnum þínum.

Spotify er heimilt að taka yfir notandanafn þitt eða krefjast að þú breytir því, sama af hvaða ástæðu.

Réttur þinn til notkunar á þjónustu Spotify

Aðgangur að þjónustu Spotify

Háð fylgni þinni við þessa skilmála (ásamt öllum öðrum viðeigandi skilmálum), veitum við þér takmarkað, endurkallanlegt leyfi án einkaréttar til persónulegrar notkunar sem ekki er í atvinnuskyni á þjónustu Spotify og efninu (kallast sameiginlega „aðgangur"). Þú mátt aðeins nota þá útgáfu af þjónustu Spotify sem boðið er upp á í búsetulandi þínu. Aðgangurinn telst vera í gildi nema og þar til þú eða Spotify segir honum upp. Þú samþykkir að þú munir ekki endurdreifa, selja eða flytja þjónustu Spotify eða efnið.

Hugbúnaðarforrit Spotify og efnið eru með skráð leyfi, ekki seld eða flutt til þín og Spotify og leyfisveitendur þess halda eignarrétti á öllum afritum af hugbúnaðarforritum Spotify og efni jafnvel eftir uppsetningu þeirra í tækjunum þínum.

Eignarréttur Spotify

Þjónusta Spotify og efnið eru eign Spotify eða leyfisveitenda Spotify. Öll Spotify vörumerki, þjónustumerki, vöruheiti, nafnmerki, lénsheiti og allir aðrir eiginleikar Spotify vörumerkisins („eiginleikar Spotify vörumerkis") eru eign Spotify eða leyfisveitenda þess. Þessir skilmálar veita þér engan rétt á að nota eiginleika Spotify vörumerkisins, hvort sem það er í atvinnuskyni eða ekki.

Þú samþykkir að fara eftir notandareglum Spotify og vettvangsreglunum og að nota ekki þjónustu Spotify, efnið eða hluta þeirra á nokkurn hátt sem brýtur gegn þessum samningum.

Greiðslur og uppsagnir

Greiddar áskriftir

Þú getur keypt greidda áskrift beint frá Spotify eða í gegnum utanaðkomandi aðila með því að:

  • greiða áskriftargjald fyrirfram mánaðarlega eða með öðru reglulegu millibili sem er skilgreint áður en kaupin fara fram; eða
  • greiða fyrirfram fyrir aðgang að þjónustu Spotify í ákveðinn tíma („fyrirframgreitt tímabil").

Skattur er reiknaður út samkvæmt upplýsingunum sem þú veitir okkur og gildandi taxta þegar mánaðarlega gjaldið er innheimt.

Ef þú kaupir aðgang að greiddri áskrift í gegnum utanaðkomandi aðilar gætu aðrir skilmálar við þann utanaðkomandi aðila gilt um notkun þína á þjónustu Spotify, til viðbótar við þessa skilmála. Ef þú kaupir greidda áskrift með því að nota kóða, inneignarkort, fyrirframgreitt tilboð eða annað tilboð frá Spotify eða sem er selt fyrir þeirra hönd, til að fá aðgang að greiddri áskrift („kóðar"), verður þú að samþykkja kortaskilmála Spotify.

Breytingar á verði og sköttum

Spotify gæti af og til breytt verðinu á greiddum áskriftum, þar með talin endurtekin áskriftargjöld, fyrirframgreitt tímabil (fyrir tímabil sem ekki er búið að greiða fyrir) eða kóðar (skilgreindir hér fyrir ofan), og mun tilkynna þér um allar verðbreytingar fyrirfram með hæfilegum fyrirvara. Verðbreytingar taka gildi við upphaf næsta áskriftartímabils eftir dagsetningu verðbreytingarinnar. Með fyrirvara um gildandi lög, þá telst þú hafa samþykkt nýja verðið ef þú heldur áfram að nota þjónustu Spotify eftir að verðbreytingin tekur gildi. Ef þú samþykkir ekki verðbreytingu geturðu hafnað henni með því að segja upp þeirri greiddu áskrift sem við á áður en verðbreytingin tekur gildi.

Skattar byggjast á þeim taxta sem gildir þegar mánaðarlegt gjald er innheimt. Þessar upphæðir geta breyst með tímanum með innlendum skattalögum í þínu landi, fylki, svæði eða jafnvel borg. Allar skattabreytingar fara sjálfkrafa í gildi samkvæmt reikningsupplýsingum þínum.

Verðið á greiddri áskrift eða prufuáskrift fer eftir þeirri útgáfu af þjónustu Spotify sem er í boði í búsetulandi þínu og þú samþykkir að notfæra þér engar leiðir til að fá aðgang að greiddri áskrift eða prufuáskrift án þess að greiða viðeigandi verð eða að tefja fyrir lögmætum leiðum Spotify til að rukka greiðslu fyrir slíkan aðgang.

Innheimta og uppsögn

Nema annað sé tekið fram (til dæmis ef þú fékkst þér áskrift að fyrirframgreiddu tímabili) halda greiddar áskriftir áfram ótímabundið þar til þeim er sagt upp. Skuldfært verður reglulega á þig á fyrsta degi hvers greiðslutímabils og þú munt greiða og leyfa okkur (eða viðeigandi þriðja aðila ef þú skráir þig í gegnum þriðja aðila) að skuldfæra gildandi áskriftargjald á greiðslumátann þinn.

Þú mátt segja upp greiddu áskriftinni þinni hvenær sem er með því að skrá þig inn á Spotify reikninginn þinn og fylgja leiðbeiningunum á reikningssíðunni eða smella hér og fylgja leiðbeiningunum. Nema annað sé tekið fram mun uppsögn taka gildi frá og með lokum greiðslutímabilsins sem þú segir upp og þá færðu eingöngu aðgang að ókeypis útgáfunni af þjónustu Spotify. Við endurgreiðum ekki eða gefum inneign vegna hluta af áskriftartímabilum, fyrir utan það sem kemur fram í þessum skilmálum.

Ef þú keyptir greidda áskrift með því að nota kóða verður áskrift þinni sagt upp sjálfkrafa í lok tímabilsins sem er tilgreint í kóðanum, eða þegar fyrirframgreidda inneignin dugar ekki til að greiða fyrir þjónustu Spotify.

Til viðbótar við og þrátt fyrir önnur réttindi sem við kunnum að njóta samkvæmt þessum skilmálum áskiljum við okkur rétt til að segja upp greiddri áskrift hvenær sem er með ekki minna en 14 daga fyrirvara til þín. Nema við upplýsum þig um annað munum við leyfa þér að hafa áfram aðgang að greiddu áskriftinni það sem eftir er af þágildandi greiðslutímabili og eftir það munum við breyta reikningnum þínum í ókeypis útgáfuna af þjónustu Spotify.

Réttur til úrsagnar

Ef þú skráir þig í prufutímabil samþykkir þú að réttur til úrsagnar úr greiddu áskriftinni sem prufutímabilið er fyrir endar fjórtán (14) dögum eftir að þú byrjar prufutímabilið. Ef þú segir ekki upp greiddu áskriftinni áður en prufutímabilinu lýkur, missir þú réttinn til úrsagnar og leyfir Spotify að rukka þig sjálfkrafa um samþykkt verð í hverjum mánuði þar til þú segir greiddu áskriftinni upp. Fyrir prufutímabil sem eru styttri en fjórtán (14) dagar samþykkir þú að við veitum þér greiddu þjónustuna strax eftir að prufutímabilinu lýkur og að þú missir réttinn til úrsagnar frá þeim tímapunkti.

Ef þú kaupir greidda áskrift án prufutímabils samþykkir þú að þú hafir fjórtán (14) daga eftir kaupin til að segja henni upp af hvaða ástæðu sem er, og að þú verðir að greiða okkur fyrir þjónustuna sem var veitt þér fram að tímanum sem þú tilkynntir okkur að þú hefðir skipt um skoðun. Þú samþykkir að við veitum þér þjónustuna strax eftir kaup þín á henni, að þú missir réttinn til úrsagnar og leyfir Spotify að rukka þig sjálfkrafa mánaðarlega þar til þú segir upp áskriftinni.

Notandareglur

Við höfum samið reglur um notkun á þjónustu Spotify til að tryggja að allir fái ánægju af notkun þjónustunnar („notandareglur Spotify"). Við notkun á þjónustu Spotify verður þú að fara eftir notendaleiðbeiningum Spotify og vettvangsreglunum sem og gildandi lögum, reglum og reglugerðum, og virða hugverkarétt, persónuvernd og önnur réttindi þriðju aðila.

Fyrirtækisreikningar

Ef þú stofnar Spotify reikning fyrir hönd fyrirtækis, stofnunar, lögaðila eða vörumerkis („Fyrirtæki" og slíkur reikningur kallast „Fyrirtækisreikningar"), munu hugtökin „þú", „þig" og „þín," eins og þau eru notuð í þessum skilmálum (einnig öðrum skilmálum Spotify sem eru innfelldir með tilvísun hér), gilda um bæði þig og fyrirtækið.

Ef þú býrð til fyrirtækisreikning staðfestir þú og ábyrgist að þú megir veita allar heimildir og leyfi sem eru tilgreind í þessum skilmálum (ásamt öllum öðrum viðeigandi skilmálum Spotify) og binda fyrirtækið við þessa skilmála.

Fyrirtæki er heimilt að fylgja notendum og búa til spilunarlista og deila þeim, svo lengi sem fyrirtækið aðhafist ekkert sem gæti verið túlkað sem stuðningur eða viðskiptasamband á milli fyrirtækisins og notandans sem það fylgir, lagahöfundarins eða annars einstakling, nema fyrirtækið hafi sjálft aflað réttinda til að gefa slíkan stuðning í skyn. Auk þess verða fyrirtæki að upplýsa notendur á gagnsæjan hátt um allan stuðning eða styrk frá þeim til listamanna, lagahöfunda, notenda eða annarra aðila og þau verða að fara eftir öllum gildandi lögum, reglugerðum og starfsháttum þegar það aðhefst það sem lýst er hér á undan.

Útflutningur og viðskiptabönn

Þú sem fulltrúi og ábyrgist að þú sért (1) ekki staðsettur í, skipulagður samkvæmt lögum, hefur að jafnaði búsetu í, neinu landi eða yfirráðasvæði sem sæta landhelgiviðurlögum (sameiginlega „viðurlögð lönd"), né ert í eigu eða kemur fram fyrir hönd stjórnvöld sem sæta refsiaðgerðum til að hindra eignir eða einhver einstaklingur eða eining sem er skipulagður, staðsettur eða að jafnaði búsettur í landi sem refsivert er; og (2) ekki einstaklingur sem er auðkenndur á, eða meira en 50% í eigu eða undir stjórn, beint eða óbeint, af eða kemur fram fyrir hönd eða fyrirmæli, einhvers aðila sem er auðkenndur á lista ESB, Bretlands, Bandaríkjanna eða annarra viðeigandi stjórnvaldsflokka, s.s. samstæðulistann yfir einstaklinga, hópa og eininga sem sæta fjárhagslegum refsiaðgerðum ESB, eða lista breska samstæðulistans, eða sérstaklega tilnefndra ríkisborgara, sem bandarísk stjórnvöld halda úti.

Vörur Spotify kunna að falla undir útflutningseftirlit og efnahagsviðurlög Evrópusambandsins, Bretlands og Bandaríkjanna, þar á meðal en ekki takmarkað við reglugerð 2021/821 með áorðnum breytingum (EU Dual-Use Regulation), bresku útflutningseftirlitslögin 2002 og bresku útflutningseftirlitsskipunin 2008, útflutningsstjórnarreglur bandaríska viðskipta- og efnahagsþvinga sem viðhaldið er af skrifstofu fjármálaráðuneytisins um eftirlit með erlendum eignum, og alþjóðlegar reglur um vopnaviðskipti sem utanríkisráðuneytið hefur viðhaldið (sameiginlega „viðskiptaeftirlitslög").

Þú samþykkir að fara að öllum viðeigandi lögum um viðskiptaeftirlit í notkun þinni á vörum eða þjónustu Spotify. Sérstaklega samþykkir þú að - beint eða óbeint - nota, selja, flytja út, endurútflutning, flytja, beina, gefa út eða farga á annan hátt vöru, hugbúnaði eða tækni (þar á meðal vörur sem eru unnar úr eða byggðar á slíkri tækni) sem berast frá Spotify samkvæmt skilmálum þessum til hvaða áfangastaðar, aðila eða einstaklings sem er eða fyrir hverja lokanotkun sem er bönnuð samkvæmt lögum um viðskiptaeftirlit. Spotify skal ekki þurfa að bregðast við á nokkurn hátt við því sem er bannað samkvæmt gildandi lögum um viðskiptaeftirlit og það skal vera eftir ákvörðun Spotify að forðast að taka beinan eða óbeinan þátt í að veita vörur eða þjónustu sem gætu verið bannaðar samkvæmt gildandi lögum um viðskiptaeftirlit.

4. Innihald og hugverkaréttindi

Efni frá notendum

Efnið sem þú birtir í þjónustunni

Notendur Spotify mega birta, hlaða upp eða veita efni á annan hátt til þjónustu Spotify („efni frá notendum"). Til að koma í veg fyrir allan vafa þýðir „notendaefni" felur í sér allar upplýsingar, efni, skilaboð eða önnur samskipti og annað efni sem notendur bæta við, búa til, hlaða upp, senda, dreifa eða birta á þjónustu Spotify. Fyrir frekari upplýsingar um notendaefni eða annað efni frá utanaðkomandi aðila og stjórnanda þess, sjá vettvangsreglur okkar, upplýsingar um efnisaðgerðir, öryggis- og persónuverndarmiðstöð okkar og hugverkastefnu okkar.

Þú berð ábyrgð á öllu efni sem þú birtir sem notandi

Þú lofar því að, með tilliti til hvers kyns notendaefnis sem þú sendir inn á þjónustuna, (1) þú átt eða hefur rétt til að birta slíkt notendaefni; og (2) slíkt notendaefni, eða notkun þess af Spotify í samræmi við leyfið sem veitt er hér að neðan, brýtur ekki: (i) í bága við þessa skilmála, gildandi lög eða hugverkarétt eða önnur réttindi utanaðkomandi aðila; eða (ii) gefa í skyn hvers kyns tengsl við eða stuðning við þig eða notendaefni þitt af Spotify eða hvaða listamanni, hljómsveit, merki eða öðrum einstaklingi eða aðila.

Við getum leyft að birta eða deila efni sem notandi með ólíkum hætti á þjónustu Spotify, meðal annars með því að senda skilaboð eða önnur samskipti til annarra notenda Spotify. Þegar þú birtir eða deilir efni sem notandi eða öðrum upplýsingum á þjónustu Spotify, hafðu þá í huga að háð því hvaða leið var notuð til að birta eða deila efninu kann efnið og aðrar upplýsingar að vera send til eins eða fleiri notenda eða kunna að verða aðgengileg almenningi og kunna að vera notuð og þeim deilt aftur af öðrum á þjónustu Spotify og á netinu. Sýndu því aðgát þegar þú birtir eða deilir efni á þjónustu Spotify og gættu að reikningsstillingum þínum. Spotify ber ekki ábyrgð á því sem þú eða aðrir birta eða deila á þjónustu Spotify.

Eftirlit með efni frá notendum

Spotify getur, en er ekki skylt, að hafa eftirlit með eða fara yfir efni frá notendum (sama hvort það er birt opinberlega eða deilt í einkasamskiptum). Spotify áskilur sér réttinn til að fjarlægja efni frá notendum eða takmarka aðgang að því án ástæðu. Spotify er heimilt að grípa til þessara aðgerða án þess að tilkynna þér um þær fyrirfram.

Leyfi sem þú veitir okkur

Efni frá notendum

Þú heldur eignarrétti þínum á efninu sem þú birtir á þjónustunni sem notandi. Hins vegar, til þess að við getum gert notendaefni þitt aðgengilegt á þjónustu Spotify og til að veita þér ákveðna eiginleika og aðgerðir, þurfum við takmarkað leyfi frá þér til þessa notendaefnis. Í samræmi við það veitir þú Spotify hér með leyfi sem er án einkaréttar, má flytja, veita undirleyfi fyrir, án þóknana, greitt að fullu, óafturkræft og alþjóðlegt, til að endurgera, veita, framkvæma og sýna, þýða, breyta, gera afleidd verk frá, dreifa og nota á annan hátt allt efni frá þér sem notandi í gegnum alla miðla, bæði eitt og sér eða með öðru efni, á allan hátt og með öllum leiðum, aðferðum og tækni, bæði þekktri nú og nýrri tækni í framtíðinni, í tengslum við þjónustu Spotify. Þar sem við á og að því leyti sem gildandi lög heimila, samþykkir þú einnig að afsala þér og krefjast ekki „siðferðilegs réttar" eða jafngilds réttar, svo sem réttar þíns til að vera nefndur höfundur efnis frá notendum, þar með talin ummæli, og réttinum til að mótmæla niðrandi meðferð á slíku efni frá notendum.

Ummæli

Ef þú veitir hugmyndir, tillögur eða önnur ummæli í tengslum við notkun þína á þjónustu Spotify eða efni („ummæli") er slíkt efni ekki trúnaðarmál og Spotify er heimilt að nota það án takmarkana og án greiðslu til þín. Ummæli teljast vera tegund efnis frá notendum í þessum skilmálum.

Tækið þitt.

Þú veitir okkur einnig rétt á (1) að leyfa þjónustu Spotify að nota örgjörva, bandvídd og vista fastbúnað í tækinu þínu til að geta veitt þjónustu Spotify, og (2) að birta þér auglýsingar og aðrar upplýsingar og að leyfa samstarfsaðilum okkar að gera hið sama, í samræmi við persónuverndarstefnu Spotify.

Upplifun efnis

Við hjá Spotify leitumst við að skapa frábæra og einstaka upplifun handa öllum notendum. Í Skilningur á tillögum á Spotify geturðu fræðst nánar um hvernig tillögukerfið okkar virkar, meðal annars hvernig og hvers vegna tiltekið efni er birt þér. Allir þættir þjónustu Spotify, efnisins sem þú færð aðgang að, þar á meðal val á því og staðsetning, geta verið undir áhrifum viðskiptaákvarðana, þar á meðal samningar Spotify við utanaðkomandi aðila.

Sumt efni sem er undir leyfi Spotify, veitt þangað, búið til af eða sem Spotify veitir á annað hátt (t.d. hlaðvörp) gæti innihaldið auglýsingar og Spotify ber ekki ábyrgð á slíkum auglýsingum.

Kröfur vegna brota á höfundarrétti

Spotify virðir hugverkaréttindi höfunda. Ef þú telur að eitthvað efni brjóti í bága við höfundarrétt þinn, vörumerki eða annan hugverkarétt, skoðaðu þáStefnu Spotify um hugverkaréttindi.

5. Aðstoð við viðskiptavini, upplýsingar, spurningar og kvartanir

Hjálparsíða Spotify

Hjálparsíða Spotify er staður fyrir samræður og upplýsingaskipti, ábendingar og annað sem tengist þjónustu Spotify. Með því að nota hjálparsíðu Spotify, samþykkir þú skilmála hjálparsíðunnar.

Aðstoð við viðskiptavini, upplýsingar, spurningar, kvartanir

Til að fá aðstoð vegna spurninga sem tengjast reikningi og greiðslum („fyrirspurnir til þjónustudeildar") geturðu notað leiðirnar sem er lýst í hlutanum Um okkur á vefsvæði okkar.

Ef þú vilt spyrja að einhverju varðandi þjónustu Spotify eða þessa skilmála (eða aðra skilmála Spotify sem vísað er í hér) biðjum við þig um að hafa samband við þjónustudeild Spotify með því að fara í hlutann „Um okkur" á vefsvæði okkar.

6. Vandamál og ágreiningsefni

Lokað á þjónustu Spotify eða henni sagt upp

Þessir skilmálar haldast í gildi þar til þú eða Spotify segir þeim upp. Spotify er heimilt að segja þessum skilmálum upp (ásamt öllum öðrum skilmálum sem vísað er í hér) eða loka á aðgang þinn að þjónustu Spotify hvenær sem er ef við teljum að þú hafir brotið gegn þessum skilmálum, ef við hættum að veita þjónustu Spotify eða efnislegan hluta hennar með hæfilegum fyrirvara til þín, eða eftir því sem við teljum nauðsynlegt til að fara eftir gildandi lögum. Ef þú eða Spotify segir þessum skilmálum upp eða ef Spotify lokar á aðgang þinn að þjónustu Spotify, samþykkir þú að Spotify beri enga skaðabótaskyldu eða ábyrgð, með fyrirvara um gildandi lög, til þín og (fyrir utan það sem lýst er í þessum skilmálum) að Spotify muni ekki endurgreiða neinar upphæðir sem þú hefur þegar innt af hendi. Þér er heimilt að segja upp þessum skilmálum hvenær sem er, en þá máttu ekki lengur fá aðgang að þjónustu Spotify eða nota hana. Til að fá upplýsingar um hvernig þú getur sagt upp Spotify reikningnum þínum geturðu skoðað upplýsingarnar á síðunni Um okkur.

Kaflar 4 (Efni og hugverkaréttindi), 3 (Notkun þín á þjónustu Spotify), 2 (Þjónusta Spotify sem við veitum), 6 (Vandamál og ágreiningur), 7 (Um þessa skilmála) í þessum skilmálum og allir aðrir kaflar í þessum skilmálum sem verða gagngert eða samkvæmt eðli sínu að haldast í gildi eftir uppsögn þeirra, skulu gilda áfram eftir uppsögn.

Fyrirvarar um ábyrgð

Sumar lögsögur leyfa ekki útilokun óbeinna ábyrgða eða takmarkanir á viðeigandi lögbundin réttindi neytanda. Því gætu útilokanirnar og takmarkanirnar í þessum kafla mögulega ekki átt við um þig og ekkert af því mun hafa áhrif á lögbundin réttindi þín.

Spotify mun veita þjónustu Spotify með því að nota hæfilegar aðferðir og kunnáttu og í samræmi við allar lýsingar sem Spotify veitir á þjónustu Spotify. Með fyrirvara um þetta, þá er þjónusta Spotify veitt í því ástandi sem hún er og samkvæmt framboði, án nokkurrar ábyrgðar, hvorki beinnar, óbeinnar eða lögbundinnar. Auk þess afsala Spotify og allir eigendur efnis sér beinni, óbeinni og lögbundinni ábyrgð varðandi efnið, þar á meðal ábyrgðir um fullnægjandi gæði, söluhæfi, hæfi fyrir ákveðinn tilgang eða brot gegn höfundarrétti. Hvorki Spotify né eigendur efnis ábyrgjast að þjónusta Spotify eða efnið séu laus við spilliforrit eða aðra skaðlega íhluti. Auk þess heldur Spotify engu fram um eða tryggir eða ábyrgist forrit utanaðkomandi aðila (eða efni þeirra), efni frá notendum, tæki eða vörur eða þjónustu sem utanaðkomandi aðili auglýsir, kynnir eða býður upp á í gegnum þjónustu Spotify eða tengda vefsíðu, og Spotify ber enga ábyrgð á viðskiptum á milli þín og utanaðkomandi veitenda fyrir framangreint. Allar ráðleggingar og upplýsingar sem þú færð frá Spotify, hvort sem þær eru munnlegar eða skriflegar, teljast ekki vera sem trygging af hálfu Spotify. Á meðan þú notar þjónustu Spotify getur þú notað síur sem loka á óæskilegt efni, en notkun á þessum síum gæti samt sem áður leitt til þess að sumt óæskilegt efni verði birt þér og þú ættir ekki að treysta á að slíkar síur geti fjarlægt allt óæskilegt efni. Þessi kafli gildir að svo miklu leyti sem gildandi lög leyfa.

Takmörkun ábyrgðar og tíma til að leggja fram kröfu

Með fyrirvara um gildandi lög samþykkir þú að eina úrlausn þín á vandamálum eða óánægju með þjónustu Spotify sé að taka niður Spotify hugbúnað og hætta að nota þjónustu Spotify. Þú samþykkir að Spotify beri engar skyldur eða ábyrgð vegna eða í tengslum við forrit utanaðkomandi aðila eða efni þeirra sem er veitt í gegnum þjónustu Spotify eða í tengslum við hana, og þó svo að samband þitt við slík forrit utanaðkomandi aðila gætu verið háð sérstökum samningum við slíka utanaðkomandi aðila, er eina úrlausn þín, eins og með Spotify, á vandamálum eða óánægju með forrit utanaðkomandi aðila að taka niður slík forrit eða hætta að nota þau.

Spotify, fulltrúar þess, hluthafar, starfsfólk, umboðsmenn, yfirmenn, dótturfélög, hlutdeildarfélög, eftirmenn, verktakar, birgjar eða leyfisveitendur munu í engum tilfellum bera ábyrgð á (1) beinu, sérstöku, óbeinu, refsitengdu, eða afleiddu tjóni; (2) tapi á notkun, gögnum, viðskiptum eða hagnaði (beinum eða óbeinum) í öllum málum sem verða til vegna notkunar eða vangetu til að nota þjónustu Spotify, tæki, forrit utanaðkomandi aðila eða efni þeirra; eða (3) uppsafnaðri skaðabótaábyrgð frá öllum kröfum sem tengjast þjónustu Spotify, forritum utanaðkomandi aðila eða efni þeirra, að hærri upphæð en (a) upphæðin sem þú greiddir Spotify tólf mánuðina fyrir fyrstu kröfuna; eða (b) $30,00. Öll skaðabótaábyrgð sem við berum vegna taps sem þú verður fyrir er stranglega takmarkað við tap sem hægt var að sjá fyrir.

Til útskýringar, þessir skilmálar takmarka ekki skaðabótaábyrgð Spotify vegna svika, rangfærslna, andáts eða líkamstjóns að svo miklu leyti sem gildandi lög myndu banna slíka takmörkun og fyrir aðra skaðabótaábyrgð sem gildandi lög banna takmörkun eða útilokun á.

Fyrir utan þar sem gildandi lög banna slíka takmörkun, skulu allar kröfur sem verða til undir þessum skilmálum vera lagðar fram (með því að leggja fram beiðni um úrlausn ágreining eða sérstaka kröfu samkvæmt samningi um úrlausn ágreining hér fyrir neðan) innan eins (1) árs frá dagsetningunni sem aðilinn sem leggur fram kröfuna veit fyrst eða ætti að vita af athæfinu, aðgerðaleysi eða galla sem gefa tilefni til kröfunnar; og ekki er boðið upp á úrlausn neinnar kröfu sem ekki er lögð fram innan þessa tímabils.

Réttindi utanaðkomandi aðila

Þú viðurkennir og samþykkir að eigendur efnisins og ákveðnir dreifingaraðilar (svo sem veitendur forritaverslana) eru ætlaðir rétthafar þessara skilmála og eiga rétt á að beita þessum skilmálum beint gegn þér. Fyrir utan það sem lýst er í þessum kafla, er þessum skilmálum ekki ætlað að veita neinum réttindi fyrir utan þér og Spotify, og þessir skilmálar skulu í engum tilfellum búa til réttindi fyrir utanaðkomandi aðila.

Ef þú hefur sótt símaforrit okkar (kallast hvert um sig „app") frá Apple Inc. („Apple") App Store eða ef þú notar appið í iOS tæki, staðfestir þú að þú hafir lesið, skilið og að þú samþykkir eftirfarandi tilkynningu um Apple. Þessir skilmálar eru einungis á milli þín og Spotify, ekki við Apple, og Apple ber enga ábyrgð á þjónustu Spotify og efni hennar. Apple ber engin skylda til að bjóða upp á viðhald og aðstoð í tengslum við þjónustu Spotify. Ef þjónusta Spotify getur ekki uppfyllt viðeigandi ábyrgð, er þér heimilt að tilkynna Apple um það og Apple mun endurgreiða þér kaupverðið appsins, og eftir því sem gildandi lög leyfa, ber Apple engin ábyrgðarskylda á hendur þjónustu Spotify. Apple ber ekki ábyrgð á að svara kröfum frá þér eða utanaðkomandi aðila sem tengjast þjónustu Spotify eða eignarhaldi þínu eða notkun á þjónustu Spotify, þar á meðal: (1) skaðabótakröfur vegna vöru; (2) kröfur um að þjónustan hafi ekki uppfyllt viðeigandi lagalegar eða reglubundnar skyldur; (3) kröfur sem verða vegna neytendavernda eða svipaðra laga; og (4) kröfur sem varða brot gegn hugverkarétti. Apple ber ekki ábyrgð á rannsókn, vörn, samþykkt og lausn á kröfum utanaðkomandi aðila um að þjónusta Spotify eða eign og notkun þín á appinu brjóti gegn hugverkarétti þess utanaðkomandi aðila. Þú samþykkir að fara eftir öllum viðeigandi skilmálum utanaðkomandi aðila þegar þú notar þjónustu Spotify. Apple og dótturfélög Apple eru utanaðkomandi rétthafar í þessum skilmálum og þegar þú samþykkir þessa skilmála á Apple rétt á (og telst hafa samþykkt þann rétt) að beita þessum skilmálum gegn þér sem utanaðkomandi rétthafi þeirra.

Skaðleysi

Þú samþykkir að halda Spotify skaðlausu frá öllu fyrirsjáanlegu tjóni, tapi og sanngjörnum kostnaði af hvaða tagi sem er (þar á meðal sanngjarnri lögmannsþóknun og kostnaði) sem stafar af eða tengist Spotify og: (1) broti þínu á einhverjum þessara skilmála (þar á meðal hvers kyns aðrir skilmálar Spotify sem eru felld inn hér); (2) hvers kyns notendaefni sem þú birtir eða leggur til á annan hátt; (3) hvers kyns starfsemi sem þú tekur þátt í eða í gegnum þjónustu Spotify; og (4) broti þínu á lögum eða réttindum utanaðkomandi aðila.

Gildandi lög, gerðardómur og staður

6.1 Gildandi lög / lögsaga

Fyrir utan það sem lög í þínu búsetulandi krefjast, skulu samningarnir (og allur ósamningsbundinn ágreiningur/kröfur sem verða vegna eða í tengslum við þá) heyra undir lög fylkisins eða landsins hér á eftir, án tillits til vals eða lagaágreinings.

Auk þess samþykkir þú og Spotify að nota lögsögu eftirfarandi dómstóla til að leysa úr öllum ágreiningi, kröfum eða deilum sem koma upp í tengslum við samningana (og öllum ósamningsbundnum ágreiningi/kröfum sem koma upp í tengslum við þá), fyrir utan þar sem lög heimila að þú getir valið um að færa málsmeðferð til búsetulands þíns, eða þar sem okkur er skylt að færa allar málsmeðferðir til búsetulands þíns.

Land eða svæði
Val um lög
Lögsaga
Öll önnur lönd og svæði þar sem hægt er að nota Spotify
Sænsk lög
Með einkalögsögu; dómstólar Svíþjóðar
Búlgaría, Kýpur, Eistland, Frakkland, Hong Kong, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Mónakó, Noregur, Filippseyjar, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Tyrkland
Sænsk lög
Ekki með einkalögsögu; dómstólar Svíþjóðar
Brasilía
Brasilísk lög
Með einkalögsögu: Ríki og ríkisdómstólar São Paulo, São Paulo, Brasilía
Kanada
Gildir ekki um íbúa Quebec: Lög Ontario-héraðs
Íbúar Quebec: Lög Ontario-héraðs, Kanada
Gildir ekki um íbúa Quebec: Útilokað fyrir utan í þeim tilgangi að framfylgja dómum; dómstólar í Ontario, Kanada
Íbúar Quebec: Dómstólar í Quebec, Kanada
Bólivía, Chile, Kólumbía, Kosta Ríka, Dóminíska lýðveldið, Ekvador, El Salvador, Gvatemala, Hondúras, Níkaragva, Panama, Paragvæ, Perú, Úrúgvæ
New York-ríki, Bandaríkin
Útilokað; ríkis- og alríkisdómsólar New York, NY

6.2 AFSAL HÓPMÁLSÓKNA

ÞAR SEM GILDANDI LÖG HEIMILA, SAMÞYKKIR ÞÚ OG SPOTIFY AÐ HVORUM AÐILA FYRIR SIG SÉ HEIMILT AÐ HÖFÐA MÁLSÓKN GEGN HINUM EINUNGIS SEM EINSTAKLINGUR OG EKKI SEM SÆKJANDI EÐA MEÐLIMUR Í HÓPMÁLSÓKN. Nema þú og Spotify samþykki, má enginn dómari hópa saman kröfur fleiri en eins aðila eða dæma í hópmálsókn þeirra.

6.3 GERÐARDÓMUR

Ef þú ert staðsettur í, hefur aðsetur í, hefur skrifstofur í eða stundar viðskipti í lögsögu þar sem þessi hluti 6.3 er framfylgjanlegur, gilda eftirfarandi lögboðna gerðardómsákvæði um þig:

6.3.1 Úrlausn ágreinings og gerðardómur

Þú og Spotify samþykkja að allur ágreiningur, krafa eða deilur á milli þín og Spotify sem verða vegna eða í tengslum við þessa samninga eða samband þitt við Spotify sem notandi þjónustunnar (hvort sem það byggist á samningi, skaðabótum, lögum, svikum, rangfærslum eða öðrum lögfræðikenningum og sama hvort kröfurnar verði til á gildistíma samninganna eða eftir uppsögn þeirra) verði meðhöndluð með bindandi gerðardómi. Gerðardómur er óformlegri en málsmeðferð fyrir rétti. ÞAÐ ER ENGINN DÓMARI EÐA KVIÐDÓMUR Í GERÐARDÓMI OG UMSÖGN DÓMSTÓLA VEGNA ÚRSKURÐAR GERÐARDÓMS ER TAKMÖRKUÐ. Uppgötvun gæti verið takmarkaðri heldur en fyrir rétti. Gerðardómari verður að fara eftir þessum samningi og getur veitt sömu skaðabætur og bætur og dómstóll (að lögmannskostnaði meðtöldum), fyrir utan að gerðardómari má ekki veita úrskurð eða lögbann öðrum en aðilum gerðardóms til bóta. Þetta ákvæði um gerðardóm gildir eftir uppsögn samninganna.

6.3.2 Undantekningar

Þrátt fyrir ákvæðin í kafla 6.3.1 hér fyrir ofan, samþykkir þú og Spotify að ekkert í þeim afsali, komi í staðinn fyrir eða takmarki á annan hátt réttindi ykkar, á hvaða tíma sem er, til að (1) hefja einstaklingsbundna málsmeðferð fyrir smákröfudómstóli, (2) krefjast fullnustuaðgerða í gegnum viðeigandi opinber eða staðbundin yfirvöld þar sem slíkt er hægt, (3) leita bóta fyrir rétti, eða (4) höfða mál fyrir dómstólum vegna brota á höfundarrétti.

6.3.3 Reglur gerðardóms

Annað hvort þú eða við megum hefja mál fyrir gerðardómi. Gerðardómur á milli þín og Spotify verður úrskurðaður samkvæmt gildandi reglum International Chamber of Commerce um gerðardóm („ICC" og „reglur ICC") á þeim tíma, af einum eða fleiri gerðardómurum sem eru útnefndir í samræmi við reglur ICC, samkvæmt breytingum í þessum samningum og hann verður undir stjórn International Court of Arbitration hjá ICC.

Allur gerðardómur mun fara fram á ensku, og fyrir utan það sem lög meðlimalands Evrópusambandsins eða annarrar lögsögu krefjast, skulu lögin sem gerðardómurinn fer eftir vera lög [viðeigandi ríkis eða lands sem lýst er í kafla 6.1] án tillits til vals eða lagaágreinings.

6.3.4 Frestur til að leggja fram kröfu

Allur gerðardómur verður að hefjast með því að leggja fram kröfu innan EINS (1) ÁRS eftir dagsetninguna sem aðilinn sem leggur fram kröfuna veit fyrst eða ætti að vita af athæfinu, aðgerðaleysi eða galla sem gefa tilefni til kröfunnar; og ekki er boðið upp á úrlausn neinnar kröfu sem ekki er lögð fram innan þessa tímabils. Ef gildandi lög banna eins árs lokafrest til að leggja fram kröfu verður að leggja fram kröfu innan stysta lokafrestsins sem gildandi lög leyfa.

6.3.5 Tilkynning; ferli

Aðili sem vill leita réttar síns fyrir gerðardómi verður fyrst að senda skriflega tilkynningu um ágreininginn til mótaðilans, í ábyrgðarpósti eða með Federal Express (gegn undirskrift) eða í tölvupósti ef við höfum ekki eiginlegt heimilisfang á skrá fyrir þig („tilkynning"). Heimilisfang Spotify fyrir tilkynningar er: [Spotify, Attn: General Counsel, 4 World Trade Center, 150 Greenwich Street, 62nd Floor, New York, New York 10007, USA]. Tilkynningin verður að (1) lýsa eðli og ástæðu kröfunnar eða ágreiningsins; og (2) lýsa bótunum sem er krafist („krafa"). Við samþykkjum að bregðast við í góðri trú til að leysa beint úr kröfunni, en ef sáttum er ekki náð innan 30 daga frá móttöku tilkynningarinnar er þér eða Spotify heimilt að senda kröfuna til gerðardóms. Á meðan gerðardómur stendur yfir má ekki tilkynna gerðardómara um sáttaupphæð frá þér eða Spotify fyrr en eftir að gerðardómari tekur lokaákvörðun og veitir bætur, ef einhverjar eru. Ef ágreiningur leysist að lokum í gegnum gerðardóm þér í hag mun Spotify greiða þér (1) upphæðina sem gerðardómari ákvað, ef einhver er, (2) síðustu skriflegu sáttaupphæðina sem Spotify bauð til að ná sáttum áður en gerðardómari úrskurðaði bætur; eða (3) $1,000.00, hvort sem er hærra. Öll skjöl og upplýsingar sem birtar eru í gerðardómi skal farið með sem algjöran trúnað af viðtakanda og skulu ekki notuð af viðtakanda í öðrum tilgangi en til gerðardóms eða til að framfylgja niðurstöðu og úrskurði gerðardóms og skulu ekki birt nema í trúnaði til einstaklinga sem þurfa að vita í slíkum tilgangi eða eins og krafist er í gildandi lögum. Hvorki þú né Spotify skuluð gera opinbera tilkynningu gerðardóms eða opinbera athugasemdir eða koma á framfæri neinum auglýsingum varðandi gerðardóminn, að undanskildum því sem krafist er til að framfylgja ákvörðun og úrskurði gerðardóms, þar með talið, en ekki takmarkað við, þá staðreynd að aðilar eru í ágreiningi, tilvist gerðardómsins, eða hvers kyns ákvörðun eða úrskurði gerðardóms.

6.3.6 Breytingar

Ef Spotify gerir einhverjar breytingar á þessu ákvæði um gerðardóm (fyrir utan breytingu á heimilisfangi Spotify fyrir tilkynningu), er þér heimilt að hafna slíkum breytingum með því að senda okkur skriflega tilkynningu innan 30 daga frá breytingunni, til heimilisfangs Spotify fyrir tilkynningu, og í því tilfelli verður reikningi þínum hjá Spotify lokað tafarlaus og þetta ákvæði um gerðardóm, eins og það gilti fyrir breytingarnar sem þú hafnaði, skal gilda áfram.

6.3.7 Aðför

Ef undanþága frá hópmálsóknunum í kafla 6.2 reynist vera óaðfararhæf fyrir gerðardómi, eða ef einhver hluti þessa kafla 6.3 reynist vera ógildur eða óaðfararhæfur, þá skal allur kafli 6.3 teljast ógildur og í því tilfelli samþykkja aðilarnir að sú einkalögsaga og staður sem lýst er í kafla 6.1 skuli ráða í öllum málum sem verða vegna eða í tengslum við samningana og ekki verður komið í veg fyrir að þú getir hafið málsmeðferð á hvaða tíma sem er.

7. Um þessa skilmála

Samkvæmt gildandi lögum átt þú ákveðin réttindi sem samningar geta ekki takmarkað. Þessir skilmálar eru á engan hátt ætlaðir til að takmarka þessi réttindi.

Breytingar

Við kunnum að gera breytingar á þessum skilmálum (ásamt öllum öðrum skilmálum Spotify sem vísað er í hér) af og til með því að tilkynna þér um slíkar breytingar með sanngjörnum hætti (áður en þær taka gildi), þar á meðal með því að birta breyttan samning um viðeigandi þjónustu Spotify (að því tilskildu að fyrir efnislegar breytingar munum við reyna að tilkynna þær einnig í gegnum tölvupóst, í sprettiglugga í þjónustunni eða með öðrum aðferðum). Allar slíkar breytingar munu ekki gilda um ágreining á milli þín og okkar sem varð til áður en við birtum breyttu skilmálana eða aðra skilmála Spotify sem innleiða slíkar breytingar, eða tilkynntum þér um slíkar breytingar. Notkun þín á þjónustu Spotify eftir breytingar á þessum skilmálum telst jafngilda samþykki þínu fyrir slíkum breytingum. Ef þú vilt ekki halda áfram að nota þjónustu Spotify samkvæmt uppfærðu skilmálunum geturðu sagt upp reikningi þínum með því að hafa samband við okkur. Dagurinn efst í þessu skjali sýnir hvenær þessum skilmálum var breytt síðast.

Allur samningurinn

Fyrir utan það sem kemur fram í þessum kafla eða sem hefur verið samþykkt skriflega á milli þín og Spotify, teljast þessir skilmálar vera allir skilmálar sem þú og Spotify samþykkja og þeir koma í staðinn fyrir alla fyrri samninga hvað varðar viðfangsefni þessara skilmála, bæði munnlega og skriflega. Eins og fram kemur hér að ofan eru aðrir skilmálar, reglur og stefnur sem gilda um notkun á þjónustunni felld inn hér með tilvísun. Þau eru meðal annars eftirfarandi: (a) aðrir skilmálar sem tengjast þjónustunni sem boðið er upp á í þjónustu Spotify: Spotify Premium skilmálar fyrir kynningarefni;kortaskilmálar Spotify og skilmálar hjálparsíðu Spotify; og (b) reglur og stefnur: persónuverndarstefna Spotify; notandareglur Spotify; vettvangsreglur Spotify og stefna Spotify um hugverkaréttindi.

Riftun og afsal

Fyrir utan það sem kemur fram í þessum skilmálum, ef eitthvert ákvæði þessara skilmála reynist vera ógilt eða óaðfararhæft, sama af hvaða ástæðu eða leyti, skulu önnur ákvæði skilmálana ekki verða fyrir áhrifum af því og beiting þess ákvæðis skal gerð að svo miklu leyti sem lög heimila.

Ef Spotify eða utanaðkomandi rétthafi lætur hjá líða að nýta sér þessa skilmála eða ákvæði þeirra, telst það ekki sem afsal á rétti Spotify eða utanaðkomandi aðila til að nýta sér þá.

Framsal

Spotify er heimilt að framselja þessa skilmála í heild eða að hluta til, og má framselja í heild eða hluta til öll réttindi sín og skyldur samkvæmt þessum skilmálum. Þér er ekki heimilt að framselja þessa skilmála í heild eða að hluta til, né heldur áframsenda eða veita undirleyfi fyrir réttindum þínum í þessum skilmálum til utanaðkomandi aðila.